|
|
20.04.2008 19:35:46 / Þórdís
hæ. já.. ég átti afmæli í gær vúhú! ég og Raggi skelltum okkur í kaupstaðarferð og ákváðum að taka helgina snemma og komum til rvk á fimmtudagskveldi (okkur var strax farið að leiðast um kaffileiti á föstudag hmm..) þurftum ýmsum hnöppum að hneppa á föstudeginum þannig hann var tekin tiltölulega snemma.. Raggi var búin að segja mér að taka soldið fínni föt með í borgina því við ætluðum út að borða - mín var forvitin, spennt og allt sem til var.. þannig tilhlökkunin var orðin mikil fyrir kveldinu! skelltum okkur s.s. á Perluna að borða og það var bara nice!! reyndar fer hringurinn svo hægt að við sáum kannski 1/4 af hringnum.. en það er ekki svo naujið sjáðu til! skelltum okkur svo í púl og bjór og já.. bara voða rómó hehe... var einn eldri maður þarna svo sósuölfaður að það voru allir að deyja þarna úr hlátri - hann alveg toppaði kvöldið laugardagurinn fór í smá pirring yfir því að allar búðir væru lokaðar á sunnudögum og ég keyrði bara um í smá fúlu því mig langaði svo að finna mér skó - en viti menn.. klukkan svona korter í tvö þá fattaði klári strákurinn minn að það væri nú bara laugardagur!!! ruglaði mig alveg að hafa komið í bæinn svona degi fyrr!! en svo komu amma og anna í kaffi til okkar, voða næs.. alltaf svo gott að hitt ömmu sína Svo var bara beðið eftir kvöldinu með eftirvæntingu! Arndís kom fyrst og stelpurnar voru á leiðinni (sonja, lilja og jónína) en held að þær hafi farið e-ð ranga leið þar sem þær komu ekki fyrr en svona 1,5 klst síðar með ca 11 blöðrur sem stóð 2 ára á.. (voru víst upphaflega 22 hehe) þær voru víst e-ð lengi að blása upp og koma þeim inní bílinn.. kjánar.. þið eruð bara æði stelpur mínar Gauji, Fribbi, Helgi og fleiri komu svo og kíktu á okkur, komu með blómvönd og konfekt.. voða sætir  einnig mættu Tobbi og Svavar að austan og var ég voða ánægð að þeir gátu komið fórum í bæjinn voða gaman og já.. Andrea besta systir í heimi sótti mig með bros á vör  hún fær knús fyrir það.. núna er ég bara billaus í borginni og bíð spennt eftir að komast austur... takk æðislega fyrir mig Þórdís
»
08.04.2008 13:06:30 / Þórdís
ég gleymdi víst að tilkynna það að ég er búin að fá mér lítinn hvutta - sem verður alltaf lítill núna skil ég afhverju mömmur verða svona ánægðar þegar börnin þeirra stíga sín fyrstu skref, koma með fyrsta brosið, fyrsta orðið og margt fleira.. ég nefnilega lenti í því í gær!! ég er s.s. búin að vera að muna annað slagið eftir því að segja henni Perlu minni að setjast þegar ég gef henni e-ð (gleymdi því sko alltaf..) alltaf horfði hún á mig einsog ég væri fáviti og ég las það bara í augunum á henni; hvað ertu eiginlega að reyna að segja, hættu þessi röfli og gefðu mér bara þetta nammi!! og viti menn.. í gær stalst ég til að gefa henni smá kjötbita og mundi að segja "sestu" og viti menn.. HÚN SETTIST!! ég hoppaði næstum því af kæti - það er enþá verið að gera grín af svipnum mínum, ég varð svooo ánægð! en þið sem ekki hafið séð mig og hana saman.. þá bara elska ég þennan hund MEST (okey Ragga meira) hún er einsog hugur manns.! svo fyndin og klaufsk..!! en ég vildi bara deila þessari sögu með ykkur.. alltaf svo mikið að gerast í sveitinni sjáiði til  kveðja frá Klaustri..
»
02.04.2008 12:52:11 / Þórdís
Hæ. Það er allt að verða vitlaust í þjóðfélaginu! Vörubílstjórar mótmæla VEI fyrir þeim, krónan er að skítfalla og við förum á hausinn, lögreglan okkar fær ekki peninga og á að fækka á þeim bænum. En burt séð frá því þá er ég flutt á Klaustur og er að fíla það!! Æ LOV IT!! Íbúðin okkar fer senn að verða tilbúin og þá þarf ég víst að halda til veislu! - allavega kökuboðs! Það er svo yndilegt að geta bara verið í rólegheitunum í sveitinni, ekkert að gera og maður finnur sér e-ð að gera! hugtakið að leiðast er ekki til í sveitaorðabókinni - annað en þeirri í bænum! Ég hef mig ekki í neitt þegar ég kem til Reykjavíkur! maður verður e-ð svo brenglaður í hausnum, svo mikill asi og svo mikið að gera en samt er einhvernveginn ekkert að gerast!!! spes! en þetta allavega kemur niður á nenninu mínu skapi! í svona stuttu máli hvað hefur verið að drífa á mína daga; páskarnir voru ÆÐI!! fórum í jeppaferð á föstudaginn langa og það var bara geeeðveikt - nema það að loftdælan bílaði í bílnum okkar þannig að lokurnar virkuðu ekki og við vorum æði oft föst.. þá var nú gott að vera með Björgunarsveitina Kyndil með sér..  Við allavega vorum 7 eða 8 bílar og BARA gaman!! (myndir á myspace.com/disapje) lagt var í hann um klukkan 6 og ég var þreytt! þurfum ekkert að ræða það hérna! en þegar við komum í Miklafell um kvöldið kom svarti bletturinn, einhverjir helvítis reykvíkingar sem voru búnir að panta kofann kvöldið áður mættu ekki þá og fannst bara allt í lagi að skemma allt fyrir okkur og stálu s.s. okkar nótt!! hversu ógeðlsega leim lið? enda fá þau aldrei aftur gistingu þarna í sveitinni!! allavega við vorum reið - blótuðum þeim í sand og ösku og þau voru bara samt einsog þau áttu heiminn - verð bara pirruð á að rifja þetta upp! Svo á ég ammli bráðum - það er nú gleðiefni, annað með aldurinn..  get ekki sagt að ég sé spennt !! Ég hafði frá svooo miklu að segja þegar ég byrjaði en núna er það bara horfið! það kannski kemur bara seinna ég ætla að reyna að vera kannski smá dugleg að blogga.. ef þið kvittið allavega adios.. þórdís
»
24.01.2008 14:55:37 / Þórdís
já Skífan góðan dag.. Já BT góðan dag! Ótrúlega gefandi, passar vel við mannsveskju sem mig sem veit ekkert um leiki eða DC hvað þá tölvur! Ég er allavega búin að læra að flytja símtöl og svona.. ótrúlega klár! En annars er ótrúlega lítið að frétta! jú nema hvað að skvísan lét aldagamlan draum rætast og fékk sér hund, ókey ekki búin að fá hann, en það verður líklegast núna bara á morgun! Það er enginn sammála þessari ákvörðun minni og mér gæti næstum ekki verið meira sama, þar sem ég er jú að vera 22 ára og ræð mér sjálf. Hún fær hvorki að fara inná heimili mömmu (þó svo að ég viti að leið og ég fer með hana þá mun hún taka ástfóstri við hana hún er svo yndileg) og Tengdó, nei takk, en þar er bílskúr bara sem ég sef með henni eða e-ð! Þetta er nú litla barnið mitt!! Við fórum af stað með þetta frábæra GPS og þar sem ég er svo gömul þá fatta ég ekki þessa tækni, og hvað þá 3G síma!! á einmitt þannig og finnst þetta þvílíkt undur! álasa ekki gamla fólkinu fyrir að fatta ekki reiknivél! Lentum hjá réttu húsi þannig að GPS virkaði og fékk ég að knúsa hana Perlu litlu, endalaust sæt! Er reyndar á lóðaríi þannig að það var smá derringur í skvísu, en ég hlustaði ekkert á það og knúsaði hana bara.. algjört krútt.. vá.. er sko með hnút í mallanum! jú íbúðin komin á sölu.. mæli ég eindregið með að kaupa hana ég mundi tjekka http://mbl.is/mm/fasteignir/fasteign/?eign=281285 En ætla að horfa á handboltann í tölvunni meðan ekkert er að gera kem með ítarlegra og skemmtilegra næst! adios Þórdís
»
05.01.2008 17:14:58 / Þórdís
hæ. Ég ákvað að henda inn einu bloggi þar sem ég hef nákvæmlega ekkert að gera á meðan ég bíð eftir dírindis lambalæri úr smiðju Álftagerðis..! umm... Ég fækk ótrúlega margt skemmtilegt í jólagjöf, eða segjum kannski frekar nytsamlegt! má þar nefna: - Matarstell með öllu tilheyrandi frá ömmu og afa á krók.. svaka flott, einmitt það sem okkur vantaði þar sem það eina sem var í búinu þegar ég kom til sögu voru 4 diskar af hverju úr rúmfatalagernum sem kostaði á sínum tíma 990 kr íslenskar! og einnig fylgdi þar með þolanleg hnífapör sem fá bara að hvíla sig neðst í skúffunni! - Eldfast mót, mamma var víst e-ð komin með leið á að ég var alltaf að stela hennar! - náttbuxur og inniskó - ostakera, mömmu fannst fíni ostaskerinn minn skera alltof þykkar sneiðar (alltaf svo afskiftasamar þessar mæður!!) - jólastyttur, jólaóróa og jólaglös - Stórt svona svart mót/pott veit ekki hvað þetta heitir, allavega er mér sagt að ég eigi að elda hrygg og læri í þessu!! kemur sér vel að notum frá ömmu og afa í sveitinni! - TURBO handþeytara!! geri aðrir betur, Andreu minni fannst svo dýrt að kaupa hrærivél þannig henni fannst þetta alveg tilvalið, enda er ég mjög ánægð. Einsog með svo margt annað, þá get ég skilað mömmu hennar handþeytara (sem ég er búin að bræða úr held ég) - skartgripi frá Ragga! Alltof flottir, greinilega að sumir voru ekkert að spara!! - kökuskerara og gaffla með (til að borða kökur) frá bróir Ragga og có.. held að þau séu að ætlast til að við bjóðum þeim oftar til veislu!! - einnig mjög flotta skál frá þeim líka - gjafabréf fyrir 10000 frá tengdó (okey, fengum það saman) - peysu einnig líka frá mömmu... - ÞRJÁR hagkaupsbækur!! greinilegt að ég á að fara að elda! held að Raggi hafi gefið fólki þessa vísbendingu, kannski ekki reyndar!! Já, einsog þið sjáið þá fékk ég mjög svo nytsamlegar gjafir. Svo er bara verið á fullu að inrétta og laga litlu krúttulega íbúðina sem við verðum í fyrir austan!! verður flottust var að kaupa dúk á ELDHÚS borðið mitt, já ég fæ eldhúsborð! (þið sem ekki vitið þá er "eldhúsborðið" sem við erum með núna svona í minni kanntinum, eða ekki nema svona 70x70!! Erum svo að fara að kaupa baðinnréttingu á morgun og reyna að finna líka málingu.. ekkert smá gaman að fá að velja allt svona sjálfur jíha.. En annars voru jólin bara frábær! eyddi aðfangadagskveldi í faðmi mömmu og anderu og var svo brunað í sveitina á jóladag, og sparaði ég ekki mokstursmönnunum kveðjurnar! hugsa að þeir hafi verið mep hiksta öll jólin blessaðir! allavega keyrði ég á ca 40 km hraða á tíma þar sem ekki var hægt að keyra á veginum vegna krapa! bíllinn var bara stjórnlaus og ráfaði maður milli vegkanta, held ég hafi 3x verið komin alveg næstum útaf! svo allt í einu fór bara allt í spól! getið rétt ímyndað ykkur kátínuna! en ég var bara með jólalögin í botni og söng fyrir sjálfa mig!  Milli jóla og nýárs fór í ryk og ógeð, steinull, klæða, mála, sópa, hugsa og ákveða! og úti varð kósý íbúð! Áramótin voru frábær! geðveikt veður á brennunni en veðurguðirnir þurftu svo að mæta með rigningu og rok klukkan 23:55 .. þannig á gamlárskvöld stóð ég úti með regnhlíf! Viðurkenni að ég hef alveg séð leiri ragettur, en þetta var samt gaman! Kíktum í smá gleði í sveitinni og svo var haldið á kaffihúsið, aðeins var farið að fækka um mannin þannig Raggi fór annað og ég var eftir með stelpunum. Ákváðum við svo að fara í Geirland ásamt öllum en vorum þá bara 5 eftir. Löbbuðum af stað í rok og rigningu og var þá ekki einn bíll að keyra og þeyr sterkustu lifa af einsog maðurinn sagði og voru 3 stelpur sem náðu því fari, en ég og Palli löbbuðum langleiðina uppi sveit, held að kápan mín sé enþá blaut!! En samt.. ótrúlega gaman og mikið sungið, alveg einsog í skagafiðinum... er nú samt ekki á eitt sátt við eitt, Þeir rífast við mig og syngja; skál og syngja SKAFTFELLIGAR.. það fannst mér ekki kúl, þá mætti ég bara með mína fölsku rödd og gargaði SKAGFIRÐINGAR!!! En held að þetta sé komið nóg!!!!! kveð að sinni 
»
26.11.2007 16:59:09 / Þórdís
hæ. Langt síðan seinast þannig ég ákvað að skella inn smá færslu  Við tókum nú flest víst eftir að það varð skelfilegur bruni fyrir norðan í fjósi. Svo var verið að tala um það að beljur þyrftu ekkert að fara út!!!! þeim liði bara vel að vera inni og láta mjólka sig oftar.. hvernig getur fólk bara ákveðið það?? eru ekki nánast ALLAR lífverur útviverur (vilja vera úti, man bara ekki orðið einhver landbúnaðargúru sagði að þær hefður aldrei verið neinir náttúrunnendur, ég get bara því miður ekki samþykkt það, beljurnar vilja ólmar komast út og hreyfa sig smá.. einsog allir aðrir! Ég fór á Broadway á laugardagskvöldið með RR tréverk, þetta var BARA snillld... geðveikur matur, geðveikt sjow og geðveikt ball... þarf ekkert að ræða það neitt nánar! Reyndar einn svartur blettur, við ákváðum að vera grand á því og gista á hótelinu einosg allir hinir en það vildi ekki betur en svo að rúmin voru ÖMULEG. held ég hafi án gríns aldrei sofið í eins vondu rúmi og þetta var á hóteli!!! þannig EKKI fara á Parkinn hótelið - það er bara glatað!! lentum einnig í því að einn í hópnum mætti töskuni sinni í andirinu á laugardeginum, og aðrir voru ekki bókaðir og ég veit ekki hvað og hvað, enda var það ákveðið að gista ALDREI þarna aftur.. Pæla samt í því.. ein hvítvínsflaska var á 3500, sko ódýrasta, og hún kostar um 1000 í ríkinu - svo er verið að tala um að ríkið sé að gera þetta e-ð dýrt.. Ég er engan vegin að koma mér í gang fyrir prófin.. ótrúlegt hvað tíminn líður, bara vika í próf.... verð að fara að taka mig á, reyndar aðeins farin að lesa í sögunni og þýskunni - verð að ná því báðu. Jólafílingurinn er að fara með mig, ég er búin að gera hurðakransinn og get hreinlega ekki beðið eftir að setja hann á hurðina það fer að líða að því.. En ég ætla að hressa mig við og fara í vinnuna, var í fríi í dag - einvher pest í mér, en ákvað að mæta í kvöld.. enga aumingja í mitt lið! Þórdís
»
05.11.2007 17:49:20 / Þórdís
hæ. æðisleg helgi að baki! Það verður ekki frá henni blessaðri tekið... Skelltum okkur í sveitasæluna og ég er bara ekki frá því að ég sé soldið spennt að flytja bara Þetta verður bara geggjað.. enda er ég búin að plana fund með mínum uppáhaldsafa um jólin og ræða skepnumál, skvísan verður að vera með hest í sveitinni, annað má nú ekki þekkjast. Ég fékk mér nýtt vegabréf í sumar, og þarf að fá mér nýtt.. hvernig finnst ykkur annars Þórdís Ýr Snjólaugardóttir hljóma? mér finnst það töff.. ekki spurja afhverju, bara segja jibbí.. Mamma mín er bara best. já svo ég víki nú aftur að helginni.. við mættum í ekkert svaka spennó veðri, beint í afmælisveislu hja honum Óla kallinum á Læk (ekki spurja mig) hann er s.s. frændi Ragga og við mættum útkeyrð og tussuleg og já það var horft!!!!! flestir komnir vel í glas þannig að það var enþá meira horft. Það var nú bara óskað okkur til hamingju, við erum enþá að velta fyrir okkur "afhverju"?? en fólk var svona líka ánægt.. Svo á Laugardaginn skelltum við okkur í fjöruferð, geggjað gaman.. nýji bíllinn var alveg að meika það!! tókum auðvitað allar byssurnar memm.. en ég skaut bara einu sinni, og auðvitað hitti mínum SPÍTUNA engin fugl núna!! Ragnar var bara að dunda sér við að skjóta seli.. vondur strákur Sunnudagurinn fór í dundur hjá stráknum en ég, en ég tók sko hjólið úr skúrnum og keyrði já.. fram og til baka.. jújú æfði mig smá að beygja.. en það var svo mikið af gömlum köllum að ég þorði barasta ekkert að fara útaf veginum! en þetta er bara gaman.... Skvísurnar mínar.. smá hjá mér á föstudaginn er það ekki okey? svo er eflaust e-ð fleira sem ég er að gleyma.. en Þórdís Ýr Snjólaugardóttir kveður að sinni...
»
29.10.2007 12:36:24 / Þórdís
... hirngi.. jámm.. ég er hörkutól!! ég var sú eina sem mætti til vinnu í morgun í úthringi verinu, geri aðrir betur! Ég er búin að vera ein að væbblast og ískalt og engin hérna hjá mér til að hjálpa mér að kynda í herberginu (ekki perralega meint! en bara þarf fleiri en einn sko) Bróðir Ragga eingaðist litla sæta skvísu 19. okt. Margrét er rosa ánægð með litlu sys þó hún sé kannski ekki alveg að átta sig á að þetta sé ekki dúkka.. æji hún er bara svo mikið krútt! Það er nú alveg e-ð búið að gerast síðan seinast og þórdís meira að segja búin að fara á djammið, já heyrirði það, á djammið!! Það var ákveðið að hafa staffapartý hérna hjá skúlason en við vinkonurunar, Arndís, lilja og Sonja ákváðum að hafa hittining þannig ég var þar í stittra laginu (en btw aftur hittingur 17. nóv girls) en skellti mér svo í þetta líka snilldarstaffateiti.. úff.. frítt áfengi og læti bara! kíkktum á hressó og dönsuðum af okkur bossan. kíkktum á thorvaldsen og fengum í láni nokkra stóla hóst hóst.. á laugardaginn var bara hryggur hjá múttu og horfðum á TV og stuð.. Andrea kom með okkur heim og tókum við okkur til fyrir smá teiti en vorum ekki lengi!! lentum í rafmagnsleisi svo líka!! frekar spes og óþægilegt!! allt í einu bara SVART!! en ég verð að hætta.. klukkan vist orðin smá of mikið.. kem með betra næst
»
16.10.2007 17:07:18 / Þórdís
hæ. ég er í bobbba.. ef einvher sem er búin með þýs 203 og ens 503 heima á krók.. PLZ hjálp!! er svo á eftir og ekki að meika þetta og verð að ná til að útskirfast!! en annars er flott að frétta! gegnur súper vel í vinnunni, þvílíkt stuð! en annars er þetta stutt þar sem það var fátt um komment seinast og ég vildi bara væla smá um vorkunn útaf enskunni minni og þýskunni!! og eitt.. djöfull er pirrandi þegar það er lagt í einkastæðið manns!! ég er enþá reið! djöfulsins fíflið á efri hæðinni, og vitiði hver afsökunin var??? það var nefnilega búið að leggja í hans stæði!!!!!!!! best að leggja þá í annarra mann því maður veit hvað þetta er pirrandi. enda gæjinn fékk að kynnast fílu dísu!! adios
»
09.10.2007 17:17:02 / Þórdís
hæ. vikan bara líður og líður.. komin þriðjudagur áður en maður veit af, ekki slæmt. Ég varð svo fjölskylduvæn um helgina að við skelltum okkur í fjölskyldu og húsdýragarðin.. rétt svona til að rækta fjölskylduböndin.. nei djók, en fórum samt þangað.. Raggi og bróðir hans voru svo agalega spenntir fyrir þessum erni sem var þarna, en vá engin smá smíði! þvílíkt flottur! fórum þangað s.s. með bróðir Ragga og litlu famelíuni hans, s.s. frú + bumbu og svo litla krúttinu mínu henni Margréti.. held ég fái bara ekki leið á henni.. sama hvað ég þarf púsla sama púsl oft með henni, alltaf jafn gaman! algjör dúlla ein tekin í húsdýragarðinum.. hún var smaaaáá smeik við örninn, allavega fannst henni hann ekkert voða merkilegur, allavega ekki einsog okkur fullorðna fólkinu. Svo er nú e-ð voða lítið að frétta.. bekkjarkvöldið nálgast óðfluga og vottar bara af smá spenningi, langt síðan maður hefur lift sér upp! ég get ekki annað sagt en ég sé í mjög svo vel launaðri vinnu.. fyrir 6 daga fékk ég meira en helminginn af því sem ég fékk í sumar!! þannig, þið getið rétt ímyndað ykkur hvað ég fékk lítið í sumar.. Allavega þá reddaði þetta mér alveg, fór beinustu leið í bónus og keypti mér í bakstur, en það vildi ekki betur til en svo að ég keypti allt.. en af gömlum vana keypti ég köku líka!!! ég veit ég veit.. laglegt þetta Þórdís!!! þannig ekki er enþá komin kaka í ofninn, en það er þó komnir snúðar, þar kom einnig sleifin sér vel sem ég fékk hjá múttu túttu hérna um daginn!! (kom sér vel að vera ekki búin að skila henni, er að spá í að gera það bara ekkert) En ég ætla þá að fara að snúa mér að vinnunni aftur lifið vel elskurnar mínar. Þórdís Ýr
»
01.10.2007 17:41:15 / Þórdís
hæ. Fyrst ég hef ekkert að gera, þá var þetta það eina sem mér datt í hug.. Það er æðimargt búið að gerast síðan síðast, ég er enþá að átta mig á hlutum sem mér vantar í búið, og er eitt þar með talið sleif, til hvers þarf ég nú sleif? jú til að gera grjónagraut! En þetta er allt að verða svona nokkurn vegin klappað og klárt, innréttingin komin upp, parketið komið niður, en ekki hillurnar komnar upp.. þær eru á leiðinni.. Ég ek um á eðalvagni (miðið við spóló þar sem mér fannst nú lancerinn vera einum of góður fyrir vinnuna, (maður er svo lúmskur sko) þá komumst við að því að spóló væri betri vinnubíll.. segið svo að póló séu ekki góðir!! minn bara oðrin háklassa vinnubíll! Við erum búin að vera mjög dugleg að fara austur, þó svo að við náum bara einum degi, þá látum við okkur hafa það að keyra, það er bara svo ólýsanlega gott að komast í sveitina, í rólegheitin umm... Djammið er ekki búið að vera uppá marga fiska hjá mér *hóst hóst* er orðin e-ð gömul.. hitti þó loksins stelpurnar mínar þar seinustu helgi og var sonja með heljarinnar teiti.. eða sko veitingarnar voru heljarinnar!! vóóó.. ég held hún hafi verið með einvhern sem gerði þetta fyrir hana, haldiði það ekki stelpur? þetta var s.s. BARA flott og bara gott, svona öllu gamni sleppt, þá sat ég í 3 tíma og át!!!!!!!!!!!! enda ég varð að hneppa frá buxunum! Svo var Arndís að láta mig vita að það verður stelputeiti 27. okt.. and i cant wait, svo má auðvitað ekki gleyma 86 árgangnum.. þetta verður e-ð spennó ég beilaði enn og aftur á réttum!!!! en ég hef alltaf svo góðar afsakanir jíha.. núna átti kallinn veiði þannig ég tróð mér með í það (þetta á víst að vera kvennmannslaust, en frekjan í mér alltaf hreint) en ég samt veiddi einn fisk, í fyrsta kasti, geri aðrir betur, svo komst ég að því að í veiði geri ég allt einsog örfhentir!! helt að það sé samt útaf því að gömlu veiðistangirnar þið vitið, þarna barna, sem maður hélt takkanum inni og kastaði og sleppti svo, á þeim er hjólið hægra megin.. en þetta er bara pæling!! Ég verð nú að vera með smááá fílublogg líka.. eða er það ekki annars?? ég hef það allavega bara stutt.. ég sem var svo sátt í sumar.. EN ég dauðsé eftir að hafa eitt þessu sumri í sveitinni!!! átti að vera skemmtilegt sumar, vera fyrir norðan, hitta vini mína þar og ömmu og afa og famelíuna á króknum en fór bara í þvílíku vinnuna frá 6 á morgnana til allavega 7 á kvöldin, og ég hafði ekkert nema skít útúr því!! er EKKI sátt!! En svo aftur gleði gleði.. þá kemur amma regína næstu helgi, vonandi afi líka.. hlakka svo til að sína þeim heimilið MITT.. ætla sko að vera búin að baka fyrir ömmu.. sú hefur sko bakað fyrir mig í gegnum tíðina.. held að það sé komin pei bekk tæm!! Svo ákvað ég í hinu snarasta að hætta í ríkinu.. var ekki að nenna að vinna til 6:30 alla daga og vera mætt í skóla kl 18:00 þannig.. núna er skvísan bara orðin sölufulltrúi.. bara gaman að því.. er bara að vinna frá 10-16:00 ekkert stress og vesen.. en ég held að ég fari að hætta þessu.. orðið mikið meira en nóg.. en jú.. Soffía náttúrulega bomm og svo er bróðir ragga að fara að eignast lítið núna bara eftir 2 vikur, bara spennandi.. þar sem þau eiga yndilegustu stelpu í heimi.. elska hana svo mikið.. enda lékum við okkur mikið saman um helgina.. en ég er þá hætt þessu rugli.. það er eins gott að þið kvittið.. trúi ekki að ég hafi verið að gera þetta að ástæðulausu.. kærlig hilsen Þórdís Ýr
»
13.08.2007 19:33:17 / Þórdís
hæ. ég er orðin frekar mikið spennt að komast heim!!
er farin að telja, 4 nætur, 3 dagar, 6-7 fjósatímar.. og margir
klukkutímar!!
Ég skellti mér í fjörðinn fagra í dag, droppaði við hjá Birnu í
klippingu og er alveg svaka skvísa núna.. maður verður að
vera sætur fyrir kallinn.. var búin að því öllu saman um 12,
og þá voru góð ráð dýr, ég nefnilega fattaði að það væri mánudagur,
sem þýddi ekkert annað en það væri fiskur og grjónagrautur hjá ömmu
minni í Álftagerði, og sú varð raunin ég fékk þennan
dýrindis fisk (skil ekki hvernig amma getur gert fisk svona
einstaklega góðan) og grjónagrautur í eftir mat (uppáhaldið
mitt) mundi það frá því hérna í den að það er alltaf fiskur
og grautur á mánud. miðvikud. og laugard. þannig þið sem
þekkið mig vel, þá vitiði núna hvaðan ég hef vanafestuna 
Anna frænka mín var í sveitinni, sys pabba semsagt... við lögðum
á sama að gömlum vana og vááá hvað það var yndilegt að komast á
hestinn sinn.. það fór ekki af mér brosið, það get ég sko sagt
ykkur, Tvistur minn veit alveg hvað ég vill og ég veit hvað hann
vill, gott team 
en ég er að spá í að hætta þessu bloggeríi.. allvega í einhvern
tíma!! alveg nóg að gera á næstunni, velja eldhúsinnréttingu,
parket, og bara neim itt ..
en ég kveð þá að sinni.. hafið það gott elskurnar
mínar!!
Þórdís Ýr - sambúðingur 
»
09.08.2007 09:28:10 / Þórdís
hæ. Það var ekkert rigning og rok í eyjum.. ég er hætt að
horfa á veðurspá!
ég lagði í hann úr sveitinni inná Akureyri um og uppúr hádegi,
var nú ekkert að fatta það að ég væri að fara til Eyja.. en svo
þegar leið á þá fór að koma smá versló fiðringur og mín fór að
verða spennt. Ég var lengi búin að velta fyrir mér hvernig
þessu flugi væri nú háttað, mér var sagt að þetta væri 3 tíma
flug!!! ég er náttúrulega svo stjúpid að ég spurði ekkert útí
þetta fyrr en komið var á flugvöllinn og þá var með sagt það að ég
mundi stoppa í bænum í einn og hálfan tíma!! núna var ég ekki sátt
við sjálfa mig þar sem ég hefði getað farið með morgunflugi (sem
hefði kostað mikið minna) og farið svo með Ragga í herjólfi, í stað
þess að hann þurfti að bíða aleinn eftir mér til 6!! en ég
lét mig hafa það, ég og Andrea kíktum bara smá í kringluna og svo
var bara brunað aftur á völlinn!
þvílík stemming sem var á vellinum! og hvað þá í
vélinni... þetta var alveg snilld! þá svona áttaði ég mig á
því að ég væri virkilega að fara til eyja!! Svo var ekkert
annað í stöðunni en að lenda í útlandinu, bekkjabílarnir tóku vel á
móti manni, en þó ekki, þeir neituðu manni að skutla manni í dalinn
maður fékk bara skutl í íþróttahúsið því þar áttu allir að gista
vegna veðurspánnar! Þar kom babb í bátinn því ég stóð einsog
asni alein og yfirgefin í stóru íþróttahúsi, en strákurinn minn kom
nú líklegast og fann mig röltum alveg helling og skoðuðum
okkur aðeins um.. löbbuðum eða príluðum rétterasagt uppá e-ð
fjall. Mig langaði að spranga, en annað hvort erum við blind
eða að spottinn hafi verið tekin niður fyrir þessa helgi.
Fimmtudagskveldið einkenndist af rigningu og roki, jú spáin
rættist smá! við vorum nú e-ð voða illa stemd fyrir þetta
húkkaraball þar sem við voru nú með "húkk" þannig við bara
lögðum okkur á gólfinu í íþróttahúsinu, já gólfinu, strætóinn var
ekki kominn þannig við urðum að láta okkur hafa það... en svo sá ég
eina stúlku sem var með mér í FÁ og hún sagði að við mættum passa
vinsængina hennar, við auðvitað jánkuðum því og sváfum á okkar
græna.. en það sem ég græddi á því var týnd húfa já ég
týndi húfunni minni sem ég var að enda við að prjóna.. ekki
sátt. svo um hálf 6 kom loksins strætó og við gátum sofið
vært!! Vöknuðum tiltölulega snemma og sátum inni í hlýjunni
og horfðum á fólkið berjast við að halda tjöldunum niðri, það var
fyndið!!
föstudagurinn leið og svo var brekkan.. þá var ekkert annað í
stöðunni en að klæða sig í tileyrandi útigalla, og fá sér bauk í
hönd. Brekkan stóð fyrir sínu! þó fannst mér
guðrún gunnars eða hver sem þetta var alveg mátt sleppa því að
koma, var svona já, hálf niðurdrepandi! svo var e-ð húllum hæ..
sólin lét sjá sig á laugardeginum.. ekki slæmt það! mér
fannst flugeldasýningin á laugardeginum svo flott að ég ætla bara
að minnast á hana á laugardaginn..
Brekkusöngurinn var á sjálfan sunnudaginn.. Árni var held ég
bara góður, annars var ég víst bara að stjórna brekkusöng með mínu
liði.. en Bubbi var ekkert sérlegur.. spilaði svo fá
lög! búúúú.. svo komu ljósin í dalnum Vááá... það var svo flott!!
þá var ég svooo ánægð að hafa Ragga hjá mér, þetta var e-ð svo
rómó! svo flugeldasýning og bara allt!! jiiii...
ég var orðin stressuð allan daginn fyrir herjólf.. var svo viss
um að verða veik og leiðindi, lá við að ég ældi bara úr stressi..
en við leigðum okkur klefa og steinsváfum.. voðalega ljúft!!
vorum svo komin heim í bælið um hálf 8! vöknuðum bæði með
óráði! hef sjaldan verið einsog rugluð í hausnum!
en í heildina var þetta bara tærasta snilllld.. maður man nú
ekkert hvað var á hverjum degi því allir dagarnir voru snilld!!
einsog við sögðum alltaf, æji það var á þjóðhátíð... oft kom það
fyrir að við ætluðum að segja í gær, eða fyrradag, en svo var það
kannski bara um morgunin.. þetta var s.s. allt bara þjóðhátíð og
djöfull sé ég ekki eftir þessu! það er margt sem ég kanski
man eki alveg í augnablikinu! en það gerðist margt
skemmtilegt og margir voru vel við könnu og fóru svei mér þá alveg
á kostum..
ég hendi inn myndum kannski seinna, svona þegar einhver getur
sagt mér hvernig maður setur inn myndir á þessa bjeskotans síðu!!!
mér er engan vegin að takast það..
en Takk þið öll fyrir eyjar!!
»
30.07.2007 16:16:36 / Þórdís
hæ. Já, það stefnir allt í rigningu og rok um versló
!! jibbí jeijj.. ég verð líka í strætó.. ekki þú ligga ligga
lá lá.. en það er alveg með eindæmum, alltaf tafir á flugi og ferju
til og frá eyjum um versló.
Það var ættarmót um helgina, eða meira svona
fjölskyldumót, voru s.s. systkini Munda afa. Afi fékk sér
bjór. Fólk sem ég hef btw aldrei séð áður! en þetta var
alveg bara mjög skemmtilegt, Ragnar kom þannig þetta var enþá betra
Það var mikið sungið og mikið drukkið af skagfirskum
sið. Ég var nú þó snemma komin í bælið bæði kvöldin, enda
langt síðan maður hefur séð elskuna sína! maður heyrði nú
útundan sér að fólk hafi verið á reiki til klukkan að ganga átta,
ég nefni engin nöfn, en helmingurinn (af 2) var náskyldur mér..
segi ekki meir. En þetta var allavega svaka stuð, afi og amma
alltaf jafn dugelg að kaupa bjór til að hella í liðið, þannig já,
held að ég og börnin hafi verið þau einu sem voru edrú þarna!!
Ég er komin með góða afsökun núna held ég fyrir því að fá mér
nýjan bíl og fara ekki á djammið! Mig langar ekki til að eiga
gamlan bílskrjóð sem getur sprungið á dekk hér og þar (afsökun sko
til að fá nýjan bíl) og maður lendir bara í lífsháska við það,
greinilega heppin að halda lífi. Svo vil ég eiga eyrun mín
lengur!
Bændurnir á bænum eru ekki heima.. Finnst snilld hvað þau eru
dugleg að fara í burtu og treysta MÉR fyrir kúnum sínum..þau átta
sig greinilega ekki hvað þau tapa miklu ef ég set véliarnar á
viltausa spena!! úff.. Þess vegna hef ég smá tíma til að
lúsast í tölvunni.. finna e-ð til að drepa tímann, mín orðin frekar
spennt fyrir eyjum jíha..
en það er best að fara að hugsa smá um börnin..
Adios - Þórdís
»
21.07.2007 20:32:14 / Þórdís
hæ. Það er enginn munur á miðvikudegi eða laugardegi í
sveitinni, sem er frábært! maður þarf ekkert að velra því
fyrir sér hvaða dagur er og hvað maður ætli að gera þessa helgi þar
sem maður gerir ekkert um helgar lengur .. Var einmitt að hugsa það
um daginn, ég hugsa að það verði e-ð lítið úr þessu
"málabæinnröndóttanndjammi" þegar ég kem heim, ég er bara engan
vegin að nenna að djamma.. er maður þá orðin gamall? held að
aldurinn sé farin að segja til sín! en maður sér til bara..
getur verið að ég komi heim um miðjan ágúst, er svona að velta
þessu fyrir mér, langar að fá smá frí áður en vinnan byrjar á fullu
í vetur! við hjúin vorum að spá í að fara í smá útilegu saman
í ágúst fá kannski fellihýsið hjá tengdó og gera e-ð smá
saman.. ekki búið að vera kannski mikið af því í sumar
ég er með smá samviskubit, þeir eru á fullu að laga strætóinn
fyrir þjóðhátíð svo sit ég bara hérna hinumegin á hnettinum og geri
ekkert, en ég tek bara til í honum í staðinn um versló, held að það
sé góður díll..
en ég var víst klukkuð.. ætli maður verði ekki að sinna
þessu! vill ekki vera þessi leiðinlega sem nennir þessu
ekki.. því ekki get ég notað þá afsökun núna að ég hafi ekkert að
gera..!! en ég bara hef ekkert að segja um sjálfa mig!! en ég
reyni að rita e-ð niður 
1. ég er harðgift
2. Ég flyt að heiman í haust!!!!!
3. Grjónagrautur er uppáhalds maturinn minn.
4. Ég er pjúra sveitalubbi!
5. Ég á eina YNDISLEGA frábæra og fullkomna alsystir, svo 3
hálf!
6. Óli afi er fyrirmyndin mín
7. Ég er vínbúðingur
8. svo er ég sko í 86' árgangnum á króknum.. við erum
flottust!
jæja.. ég klukka borgarstelpurnar, ALLAR, Margréti, svo
bara þið hin!
en ég er hætt þessu, best að fara að glápa á Tv..
en ég vil samt eitt.. Soffía og Bergur, til hamingju með
baksturinn 
adios - Þórdís ýr
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
�?�?â�?�°g fer til L�?�?�?ºx
Fyrir 588 dögum
EYJAR beibí..
|